Fréttasafn



3. mar. 2020 Almennar fréttir Mannvirki

Verk og vit frestað fram í október

Í tilkynningu sem send hefur verið fjölmiðlum kemur fram að framkvæmdaaðili sýningarinnar Verk og vit hafi að höfðu samráði við Embætti landlæknis og samstarfsaðila sýningarinnar ákveðið að fresta sýningunni sem halda átti í Laugardalshöll 12.-15 mars næstkomandi fram til 15.-18. október 2020.

Í tilkynningunni segir: Í ljósi aðstæðna vegna COVID-19 setur framkvæmdaaðili sýningarinnar heilsu og hag sýnenda, þjónustuaðila og gesta sýningarinnar í forgang og er þessi ákvörðun tekin nú áður en uppsetning hefst á sýningunni. Verk og vit hefur skipað sér sess sem uppskeruhátíð bygginga- og mannvirkjageirans en á síðustu Verk og vit sýningu 2018 sóttu um 25.000 manns sýninguna.

Með hliðsjón af eðli sýningarinnar og þeim fjölda fólks sem sækir sýninguna heim, þá væri það erfiðleikum bundið að framfylgja að fullu leiðbeiningum almannavarna. Til að gæta ýtrasta öryggis sýnenda og gesta þá er sýningunni eins og áður er nefnt frestað fram í október 2020.