Fréttasafn



17. maí 2018 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Viðburður í tengslum við opinbera heimsókn forseta Íslands

Íslendingar geta lært mikið af Finnum hvað varðar stefnumótun stjórnvalda í nýsköpun og markvissa uppbyggingu hugverkaiðnaðar. Heilbrigðistækniiðnaður er ört vaxandi alþjóðlega og hafa útflutningstekjur Finna í þessum iðnaði fimmfaldast á síðustu 20 árum. Þetta er meðal þess sem fram kom í ávarpi Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, á viðburði sem haldinn var í Helsinki í gær um nýsköpun og heilbrigðistækni í tengslum við opinbera heimsókn forseta Íslands til Finnlands.  Það voru Samtök iðnaðarins, í samvinnu við systursamtök sín í Finnlandi, sem stóðu fyrir viðburðinum.

Fulltrúar frá Össuri, Nox Medical og Mentis Cura kynntu lausnir sínar á sviði heilbrigðistækni að viðstöddum forseta Íslands og fjölmörgum öðrum gestum, ásamt þremur finnskum fyrirtækjum sem skara fram úr á sviði heilbrigðistækni. Í ávarpi Sigurðar kom einnig fram að fyrirtækin sex frá Íslandi og Finnlandi væru dæmi þess hvernig nýsköpun og áralangar rannsóknir geta leitt til byltingarkenndra lausna sem skapa þjóðhagslegan ávinning um leið og lífsgæði eru bætt.

Það voru Pétur Már Halldórsson frá Nox Medical, Ívar Meyvantsson frá Mentis Cura og Kristleifur Kristjánsson frá Össuri sem kynntu sín fyrirtæki en þau eiga það öll sameiginlegt að stunda rannsóknir og þróun í heilbrigðistækni og hafa þróað framúrskarandi vörur og lausnir á því sviði. Eftir kynningu fyrirtækjanna tóku við umræður um nýsköpun í heilbrigðisiðnaði, framtíð heilbrigðistækni og mikilvægi öflugrar stefnumótunar stjórnvalda á þessu sviði. Í umræðunum kom meðal annars fram hversu mikilvægt er að stjórnvöld móti öfluga stefnu á sviði nýsköpunar sem styðji við fyrirtæki á sviði heilbrigðistækni og að markvisst sé unnið að því að byggja upp hugverkaiðnað á Íslandi þar sem slíkt eflir verðmætasköpun, bætir lífskjör og stuðlar að auknum stöðugleika í hagkerfinu.

Ljósmyndir: Karl Vilhjálmsson.

Kv1_7608

Dsc_6777

Dsc_6796

Dsc_6784

Dsc_6760

Kv1_7577

Dsc_6772