Fréttasafn



21. jún. 2017 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Vísinda- og tækniráð samþykkir stefnu og aðgerðir til 2019

Vísinda – og tækniráð hefur samþykkt stefnu og aðgerðaáætlun áranna 2017 til 2019. Stefnan er í 5 köflum og inniheldur 10 aðgerðir með tilgreindum ábyrgðaraðila. Þær miða að því að auka afköst rannsókna- og nýsköpunarkerfisins með markvissri og vel grundaðri ákvarðanatöku og skilvirkni nýtingu fjármagns.

Stefnan er unnin samhliða stefnu sem birtist í fjármálaáætlun ríkisins fyrir árin 2018-2022. Fyrsta aðgerðin sem sett verður af stað á grundvelli stefnunnar er að auglýst verður eftir  styrkjum í markáætlun um tungu og tækni. Gert er ráð fyrir að fylgja stefnunni eftir með reglulegum stöðuskýrslum.

Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra og formaður ráðsins, hefur lagt áherslu á jöfn tækifæri kvenna og karla í rannsóknum og nýsköpun og að ekki gæti kynjahalla í fjármögnun rannsókna. Ráðherra ætlar að setja af stað endurskoðun á lagaumhverfi  Vísinda- og tækniráðs með það að markmiði að styrkja stöðu landsins á þessu sviði í alþjóðlegu umhverfi. Þar verður m.a. horft til umbóta  á sambærilegum kerfum sem gerðar hafa verið í nágrannaríkjum á undanförnum árum.

Sjá nánar á vef Stjónarráðs Íslands.