Fréttasafn



9. apr. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

Vísindaferð YR

Yngri ráðgjafar, YR, innan FRV efna til vísindaferðar í rannsóknar- og þróunardeild Bláa lónsins og Carbon Recycling International föstudaginn 27. apríl næstkomandi kl. 14.00-18.00.

Brottför verður með rútu frá Borgartúni 35 stundvíslega kl. 14.00. Þar sem hámarksfjöldi í ferðina miðast við 30 manns er nauðsynlegt að skrá sig. Áætlaður komutími til baka er kl. 17.00 og verður þá boðið upp á léttar veitingar í Kviku í Borgartúni 35. 

Hér er hægt að skrá sig.