Fréttasafn



27. nóv. 2018 Almennar fréttir

68% heildarlauna í litlum og meðalstórum fyrirtækjum

Launagreiðslur lítilla og meðalstórra fyrirtækja hafa nær tvöfaldast frá árinu 2010 og námu á árinu 2017 um 550 milljörðum króna sem er 68% af greiddum heildarlaunum í landinu. Þetta kom meðal annars fram á vel sóttum fundi Litla Íslands sem fram fór í morgun á Grand Hótel Reykjavík undir yfirskriftinni Geta litlu fyrirtækin hækkað kaupið? Sigmar Vilhjálmsson stýrði fundinum en sérstakur gestur var Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðabæjar.

Á fundinum höfðu framsögu nokkrir stjórnendur minni fyrirtækja um stöðu og horfur út frá eigin rekstri;  Brynja Brynjarsdóttir, eigandi Hraunsnefs sveitahótels, Eva Hlín Dereksdóttir, framkvæmdastjóri Raftákns verkfræðistofu, Ómar Pálmason, framkvæmdastjóri Aðalskoðunar, og Hrefna Björk Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Rok restaurant. Í máli þeirra kom fram að staðan væri viðkvæm en laun á undanförnum árum hafi hækkað hlutfallslega mest hjá minni fyrirtækjum en launakostnaður vegur þungt í rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Í máli Hrefnu kom meðal annars fram að stutta svarið fyrir spurningu fundarins væri: nei litlu fyrirtækin geta ekki hækkað kaupið.  

Atvinnurekandi greiðir 157 krónur þegar launafólk fær 100 krónur

Í erindi Óttars Snædal, hagfræðings á efnahagssviði SA, kom meðal annars fram að sjö af hverjum tíu starfsmönnum á vinnumarkaði vinni hjá litlu eða meðalstóru fyrirtæki, alls um 100 þúsund starfsmenn. Fyrirtæki sem kölluð eru örfyrirtæki í hagtölum, með 1-9 starfsmenn, eru mikilvæg í atvinnulífinu og greiddu 126 milljarða króna í heildarlaun árið 2017. Lítil fyrirtæki, með allt að 49 starfsmenn, greiddu 216 milljarða króna og meðalstór fyrirtæki með allt að 249 starfsmenn greiddu 210 milljarða milljarða. Ríkið tekur til sín drjúgan hlut þessara greiðslna og til að mynda nam tryggingagjald 60 milljörðum króna 2017 en lítil fyrirtæki hafa ítrekað kallað eftir lækkun gjaldsins sem heftir nýsköpun og heldur aftur af fjölgun starfa. Óttar sýndi hvernig heildargreiðslur atvinnurekenda eru mun hærri en umsamin laun og tók dæmi þegar 100 krónur renna til launafólks þá þurfi atvinnurekandi að greiða 157 krónur þegar við bætist greiðsla vegna orlofs, greiddra kaffitíma, sérstakra frídaga, veikinda og slysa, lífeyrissjóða og samningsbundinna sjóða.

Hér er hægt að nálgast glærur Óttars frá fundinum. 

Hægt er að horfa á upptöku af fundinum á Facebook-síðu Litla Íslands. 

Litla Ísland sem var stofnað 2013 er vettvangur þar sem minni fyrirtæki vinna saman óháð atvinnugreinum. SA og aðildarsamtök, þar á meðal Samtök iðnaðarins, eru bakhjarlar Litla Íslands.

Mynd-fyrir-vef-002-

Sa_fundur_litla_island_27112018-2Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, lengst til hægri.

Sa_fundur_litla_island_27112018-4Óttars Snædal, hagfræðings á efnahagssviði SA.

Sa_fundur_litla_island_27112018-5
Sa_fundur_litla_island_27112018-11Brynja Brynjarsdóttir, eigandi Hraunsnefs sveitahótels.

Sa_fundur_litla_island_27112018-17Eva Hlín Dereksdóttir, framkvæmdastjóri Raftákns verkfræðistofu.

Sa_fundur_litla_island_27112018-22Ómar Pálmason, framkvæmdastjóri Aðalskoðunar.

Sa_fundur_litla_island_27112018-28Hrefna Björk Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Rok restaurant og Sigmar Vilhjálmsson sem stýrði fundinum.

Sa_fundur_litla_island_27112018-31Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðabæjar.

Á Facebook er hægt að skoða fleiri myndir.