Fréttasafn



6. mar. 2019 Almennar fréttir

Aðalfundur og Iðnþing á morgun

Aðalfundur Samtaka iðnaðarins og Iðnþing verður haldið á morgun fimmtudaginn 7. mars. Aðalfundur hefst kl. 10 í Kaldalóni í Hörpu og Iðnþing kl. 14.00 í Silfurbergi í Hörpu. Þess má geta að Iðnþing 2019 er viðburður í jafnvægi og hefur fengið Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum.

Dagskrá aðalfundar

  • Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
  • Framkvæmdastjóri leggur fram til úrskurðar endurskoðaða ársreikninga samtakanna fyrir liðið almanaksár, með athugasemdum endurskoðanda
  • Tillaga stjórnar um fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár
  • Lagabreytingar
  • Launakjör stjórnar
  • Lýst kjöri formanns og meðstjórnenda
  • Lýst kjöri í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins
  • Kjörinn löggiltur endurskoðandi
  • Kosinn kjörstjóri og tveir aðstoðarmenn hans
  • Önnur mál

Iðnþing 2019 - Íslenskur iðnaður í fortíð, nútíð og framtíð

Iðnþing hefst kl. 14.00 í Silfurbergi. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er Íslenskur iðnaður í fortíð, nútíð og framtíð. Íslenskur iðnaður hefur verið órjúfanlegur hluti af sögu Íslands og verður þess minnst nú þegar 25 ár eru liðin frá stofnun Samtaka iðnaðarins. Á þinginu verður horft á það sem áunnist hefur í áranna rás, varpað verður upp myndum af stöðu dagsins í dag, auk þess sem rýnt verður í framtíðina sem er rétt handan við hornið. Þá munu forkólfar íslensk iðnaðar segja frá sinni sýn á framtíðina.

Dagskrá

  • Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, stýrir umræðum um viðfangsefni iðnaðar.

Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.

Auglysing-med-ollum