Fréttasafn



2. mar. 2020 Almennar fréttir Mannvirki

Ásókn hins opinbera í verðmæta lykilstarfsmenn er áhyggjuefni

Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, segir í grein sinni í Morgunblaðinu í dag það vera áhyggjuefni að hið opinbera sé í síauknum mæli að taka til sín verðmæta lykilstarfsmenn frá íslenskum verkfræðistofum. Hún segir að réttara væri að styðja við uppbyggingu sérfræðiþekkingar í atvinnulífinu með því að útvista verkefnum eftir fremsta megni og sérstaklega í því árferði sem við siglum nú inn í.

Veruleg fjölgun launþega hjá hinu opinbera

Jóhanna Klara segir að undanfarið hafi orðið veruleg fjölgun launþega hjá hinu opinbera og fyrirtækjum í þess eigu á sama tíma og fjöldi starfsmanna í viðskiptahagkerfinu hafi dregist saman. Í nýrri könnun sem Samtök iðnaðarins gerðu meðal aðildarfélaga Félags ráðgjafarverkfræðinga, FRV, svöruðu 75% aðspurðra að ráðningar hins opinbera á þeirra lykilstarfsfólki hefðu aukist til muna á síðustu árum og 92% fyrirtækjanna telja að það vegi verulega að samkeppnishæfni þeirra á markaði. Fréttir um fjölgun starfsfólks Orkuveitu Reykjavíkur um 32% frá árinu 2013 hafi því ekki komið verkfræðistofum innan FRV á óvart.

Innhýsing hins opinbera dregur úr tækifærum til að skapa útflutningstekjur

Í grein sinni segir Jóhanna Klara að atvinnugreinin starfi ekki aðeins hér á landi heldur skapi hún útflutningstekjur með því að leiða og taka þátt í verkefnum erlendis sem séu leidd af íslenskum ráðgjafarverkfræðingum. Í litlu samfélagi þar sem verkefnin séu færri og smærri sé því mikilvægt að hið opinbera leiti til sérfræðinga í atvinnulífinu, þannig takist fyrirtækjunum að efla mannauð sinn og skapa samkeppnishæfa útflutningsvöru. Hún segir að hjá hinum Norðurlandaþjóðunum sé útflutningur á þekkingu verkfræði- og arkitektastofa stór hluti af veltu þessara fyrirtækja, til dæmis í Danmörku og Svíþjóð sé hlutfallið um 20%. Útvistun hjá hinu opinbera geti skapað mörg ný störf, sem gefi fyrirtækjunum tækifæri til að fara með þekkingu sinna starfsmanna í útrás og færa hana milli verkefna og sviða. Það blasi við að aukin innhýsing hins opinbera dragi úr getu fyrirtækjanna til að nýta slík tækifæri. Í stað þess að taka starfskrafta út úr atvinnugreininni hér á landi ætti hið opinbera frekar að styðja við uppbyggingu greinarinnar þannig að Ísland gæti náð hinum norrænu löndunum í útflutningi á verkfræðiráðgjöf.

Öfugsnúin stefna stjórnvalda

Í niðurlagi greinar sinnar segir Jóhanna Klara það hljóti að vera vilji stjórnvalda að auka verðmætasköpun hér á landi með því að styðja við bakið á atvinnulífinu frekar en að draga til sín starfsfólk með dýrmæta þekkingu og reynslu úr einstökum atvinnugreinum og koma þannig í veg fyrir að tækifærin til vaxtar séu nýtt. „Það er ástæða til að hafa áhyggjur því það er eitthvað öfugsnúið við þessa stefnu stjórnvalda.“

Hér er hægt að lesa grein Jóhönnu Klöru.