Fréttasafn



6. maí 2020 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Atvinnuleysi eykst hratt í bygginga- og mannvirkjagerð

Mætum COVID-skellinum með innviðauppbyggingu er yfirskrift greinar sem Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, skrifar í Markaðinn í dag. Þar segir hann að nær einn af hverjum fimm starfsmönnum í bygginga- og mannvirkjagerð séu atvinnulausir eða á hlutabótum. Atvinnuleysi í greininni sé að aukast hratt en í mars mældist atvinnuleysið í greininni 1.220 sem sé margfaldur fjöldi þess sem sést hefur á þessum árstíma síðustu ár.

Ingólfur segir að verkefnastaðan í greininni hafi minnkað hratt undanfarið. Dregið hafi úr fjárfestingum atvinnuveganna samhliða þeim mikla samdrætti sem kominn sé í hagkerfið. Veik staða fyrirtækja samhliða hruni í eftirspurn hafi haft mikil áhrif á fjárfestingar þeirra en bygginga- og mannvirkjagerð hafi m.a. verið í mikilli uppbyggingu fyrir ferðaþjónustuna á síðustu árum. Einnig hafi dregið umtalsvert úr byggingum íbúðarhúsnæðis og þá sérstaklega á fyrstu byggingarstigum en í vortalningu SI á íbúðum í byggingu á höfuðborgarsvæðinu mældist 42% samdráttur á fyrstu byggingastigum.

Hann segir að það sé jákvætt að ríki, sveitarfélög og opinber fyrirtæki hafi undanfarið boðað auknar innviðaframkvæmdir af ýmsum toga til að skapa hagkerfinu viðspyrnu á þessum tímum vaxandi atvinnuleysis og samdráttar í efnahagslífinu. Auk þess hafi þau boðað aðgerðir sem gætu örvað fjárfestingu einkaaðila. Í heild sé áætlað að umfangið gæti verði um 50 ma.kr. og eigi auknar innviðaframkvæmdir opinberra aðila að mestu að falla til á þessu ári. 

Ingólfur segir að þróun samdráttarins sé hröð og því mikilvægt að loforðum fylgi skjótar efndir í aðgerðum stjórnvalda sem geta spornað gegn þeirri óheillaþróun. Í ljósi líklegs umfangs samdráttarins sé þörf á frekari aðgerðum á þessu sviði. Með því að mæta COVID-skellinum með fjárfestingum í innviðum sé fjárfest í hagvexti framtíðarinnar á sama tíma og sköpuð sé nauðsynleg viðspyrna á fordæmalausum tímum í íslensku hagkerfi. 

Hér er hægt að lesa grein Ingólfs í heild sinni.