Fréttasafn



2. jan. 2020 Almennar fréttir

Blikur á lofti í íslenskum iðnaði

Það eru sannarlega blikur á lofti í íslenskum iðnaði. Einn af hverjum fimm á vinnumarkaði starfar í iðnaði, iðnaðurinn skapar 30% af gjaldeyristekjum og um fjórðung landsframleiðslu. Það eru því ríkir hagsmunir af því að íslenskur iðnaður sé öflugur. Með ákvörðunum okkar í dag höfum við áhrif á morgundaginn. Nýtum það til að efla stoðirnar enn frekar, skapa fleiri tækifæri hér á landi og auka þannig við lífsgæði okkar allra. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í grein sinni sem birt er í áramótaútgáfu Markaðarins undir yfirskriftinni Snúum vörn í sókn

Hann segir að nú sé kvatt krefjandi ár í íslensku atvinnulífi. Eftir langt hagvaxtarskeið hafi tekið við samdráttur með tilheyrandi áskorunum. Í megingreinum iðnaðar – byggingariðnaði, framleiðsluiðnaði og hugverkaiðnaði – fækkaði starfsfólki á árinu samhliða óvissu og erfiðari rekstrarskilyrðum en undanfarin ár. Ef ekkert verði að gert megi búast við frekari fækkun starfa og fyrirtækja. Lausnin felist í atvinnustefnu sem ætti að vera rauði þráðurinn í annarri stefnumótun stjórnvalda og að um það hafi Samtök iðnaðarins fjallað ítarlega. 

Í grein sinni segir Sigurður einnig að á sama tíma og Seðlabankinn lækki vexti sína til að örva fjárfestingu þá skili það sér ekki almennilega í lækkun vaxta til fyrirtækja. Fjármálamarkaðir virki ekki sem skyldi. Meira þurfi til svo fjárfesting fari af stað og hljóti Seðlabankinn að horfa til þess á komandi ári. Einnig nefnir hann að umgjörð raforkumála þurfi endurskoðun enda miðist regluverk við veröld sem var. Samkeppni á markaðnum eigi að vera virk, hið opinbera þurfi að móta eigendastefnu fyrir starfsemi orkufyrirtækja í opinberri eigu, Landsnet eigi að vera í eigu ríkisins en ekki orkufyrirtækja og kaupendur eigi að geta selt frá sér raforku sem þeir ekki nota. Sigurður segir raforkuverð vera eitt af því fáa sem hafi skapað Íslandi samkeppnisforskot en það hafi sannarlega minnkað og með sama áframhaldi megi allt eins búast við því að fyrirtæki sjái sér hag í því að draga úr starfsemi hér á landi og flytja starfsemi til annarra landa.

Fækkun starfa framundan

Þá segir Sigurður í grein sinni að há laun, háir raunvextir og há skattheimta í alþjóðlegum samanburði bitni á fyrirtækjum hér á landi, ekki síst þeim sem starfi á alþjóðlegum mörkuðum eða sem keppi við innfluttar vörur. Komi þetta niður á hagkvæmni rekstrar hér á landi og stöðu íslenskra fyrirtækja í erlendri samkeppni. Hingað til hafi gengi krónu rétt af samkeppnishæfni Íslands en það gerist ekki nú þar sem grundvallarbreyting hafi orðið á hagkerfinu á undanförnum áratug. Skuldir heimila, fyrirtækja og ríkis hafi lækkað umtalsvert, erlendar eignir séu umfram erlendar skuldir og aukin fjölbreytni sé í útflutningi. Saman styrki þetta stoðir hagkerfisins og áhrif þess komi nú fram í minni sveiflum. Fyrir vikið verði ekki leiðrétting á samkeppnisstöðunni og það fækki störfum hér á landi. Það sé óásættanlegt.

Hér er hægt að lesa grein Sigurðar í heild sinni.