Fréttasafn



14. mar. 2019 Almennar fréttir

Færri félagsmenn SI meta efnahagsaðstæður góðar

Í nýrri greiningu SI sem byggir á könnun meðal félagsmanna sem framkvæmd var af Outcome í febrúar kemur fram að mun færri telja aðstæður í efnahagslífinu góðar til atvinnureksturs í febrúar í ár en á sama tíma á árunum 2016 til 2018. Væntingar forsvarsmanna iðnfyrirtækja til efnahagsaðstæðna á næstunni eru einnig á hraðri niðurleið. Bera niðurstöðurnar vott um þá miklu óvissu sem ríkir með efnahagshorfur nú á vormánuðum, m.a. vegna kjaraviðræðna.

Efnahagsadstaedur-godar

Fleiri segja ekki skort á starfsmönnum 

Niðurstöður þessarar nýju könnunar bera vott um talsverða kólnun á vinnumarkaði. Forsvarsmenn 67% iðnfyrirtækja telja þannig ekki vera skort á starfsmönnum sem er mikil hækkun frá fyrra ári en árin 2017 og 2018 var hlutfallið um 48%. Á sama tíma hefur hlutfall aðspurðra sem finna fyrir skorti á starfsmönnum lækkað umtalsvert, úr 44% í 27%. Um 75% fyrirtækja segja helst skorta iðnmenntað starfsfólk.

Skortur-a-starfsfolki


Flestir mæta launahækkunum með verðlagshækkunum

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hyggjast 52% forsvarsmanna iðnfyrirtækja mæta launahækkunum með verðlagshækkunum. Um 45% hyggjast mæta slíkum hækkunum með því að skera niður kostnað, þ.e. um 23% með því að fækka starfsfólki og 22% með því að skera niður annan rekstrarkostnað. Ljóst er því að launahækkanir munu leiða til aukins atvinnuleysis í iðnaði og verðbólguþrýstings í hagkerfinu.

Hvernig-maeta-launahaekkunum


Hér er hægt að nálgast greiningu SI í heild sinni.