Fyrirhugaðar breytingar á búvörulögum skapa mikla óvissu
„Frumvarpið hefur neikvæð áhrif á hag bæði bænda og neytenda, sem kjósa íslenskar vörur, því með því er dregið úr hagkvæmni og skilvirkni í landbúnaðarframleiðslu. Auk þess skapa þessar fyrirhuguðu breytingar mikla óvissu í starfsumhverfinu,“ segir Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI, í forsíðufrétt Morgunblaðsins. „Verði breytingarnar að veruleika munu þær veikja bæði samkeppnishæfni og viðnámsþrótt landsins og draga úr fæðuöryggi. Það gengur þvert gegn helsta verkefni stjórnvalda, sem er að ryðja heimatilbúnum hindrunum úr vegi á óvissutímum.“ Hann segir í fréttinni að þess utan skapi lausatökin við gerð þess sjálfstæð vandamál. „Frumvarpið er svo illa unnið að vandséð er að Alþingi sé stætt á því að afgreiða málið án verulegrar hættu á eftirmálum.“
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að bæði Samtök iðnaðarins (SI) og Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) telji búvörufrumvarp atvinnuvegaráðherra meingallað. Í umsögnum þeirra til atvinnuveganefndar Alþingis sé að finna margháttaðar efnislegar athugasemdir en einnig eru vinnubrögðin við gerð þess átalin.
Hér er hægt að nálgast umsögn SI.
Hér er hægt að nálgast umsögn SAFL.
Morgunblaðið / mbl.is, 9. febrúar 2025.



