Fyrirhuguð hækkun skatta mun draga verulega úr íbúðauppbyggingu
Í nýrri greiningu SI kemur fram að Samtök iðnaðarins mótmæli harðlega boðaðri lækkun stjórnvalda á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað sem gæti jafngilt að meðaltali 2,5-3 milljóna króna skattahækkun á byggingarkostnað 100 fermetra íbúðar. Staða byggingariðnaðar um þessar mundir gefur, þvert á boðuð áform, tilefni til að draga úr skatta- og gjaldskrárhækkunum. Réttara væri að hækka endurgreiðsluhlutfallið, fremur en að lækka það, til að styðja við atvinnu, tryggja íbúðauppbyggingu og draga úr neikvæðum áhrifum samdráttar í greininni sem á endanum hefur áhrif á lífskjör almennings.
Í nýrri spurningakönnun sem SI létu gera meðal verktaka sem byggja íbúðir kemur fram að umræddar breytingar koma til með að hækka byggingarkostnað íbúða, draga úr uppbyggingu, auka atvinnuleysi í greininni, ýta undir svarta atvinnustarfsemi og draga úr getu almennings til að viðhalda fasteignum sínum.
Orðræða stjórnvalda um að lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts á byggingarvinnu sé til þess fallin að draga úr skattastyrkjum er einfaldlega röng. Kerfið á rætur að rekja til innleiðingar virðisaukaskatts og var ætlað að koma í veg fyrir uppsöfnun skatts og hækkun byggingarkostnaðar. Þetta er bein afleiðing af þeirri kerfislegu staðreynd að ekki er hægt að nýta innskatt af vinnu manna við sölu íbúðarhúsnæðis þar sem það er undanþegið virðisaukaskatti. Þá var kerfið útvíkkað til viðhalds síðar og var sú breyting rökstudd með því að verðbólgan ógnaði kjarasamningum líkt og nú er.

Hér er hægt að nálgast greininguna í heild sinni.

