Iðnþing 2019 í Hörpu í dag
Iðnþing 2019 hefst í dag kl. 14.00 í Silfurbergi í Hörpu. Þess má geta að Iðnþing 2019 er viðburður í jafnvægi og hefur fengið Jafnréttisstimpil Kvenna í orkumálum. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er Íslenskur iðnaður í fortíð, nútíð og framtíð. Íslenskur iðnaður hefur verið órjúfanlegur hluti af sögu Íslands og verður þess minnst nú þegar 25 ár eru liðin frá stofnun Samtaka iðnaðarins. Á þinginu verður horft á það sem áunnist hefur í áranna rás, varpað verður upp myndum af stöðu dagsins í dag, auk þess sem rýnt verður í framtíðina sem er rétt handan við hornið. Þá munu forkólfar íslensk iðnaðar segja frá sinni sýn á framtíðina.
Dagskrá
- Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
- Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, stýrir umræðum um viðfangsefni iðnaðar.
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.