Fréttasafn



9. feb. 2026 Almennar fréttir Mannvirki

Kalla eftir samstöða um úrbætur í húsnæðismálum

VR og Samtök iðnaðarins (SI) hafa fundið samhljóm í húsnæðismálum. Við deilum sýn á vandann og hina brýnu nauðsyn að ná stöðugleika, fólki, fyrirtækjum og samfélaginu öllu til heilla. Þetta segja Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í grein í helgarútgáfu Morgunblaðsins undir yfirskriftinni Samstaða um úrbætur í húsnæðismálum.

Ríkisvaldið taki meiri ábyrgð

Þau segja að í þeim anda hafi verið haldinn opinn fundur í vikunni um húsnæðismál undir yfirskriftinni „Samstaða um úrbætur í húsnæðismálum“ þar sem efnt var til samtals ólíkra aðila um áskoranir og leiðir fram á við. Þau segja að með samstöðu verði nauðsynlegar umbætur og það eigi ekki síst við í húsnæðismálum, málaflokki sem fjölmargir koma að. Ríkisvaldið búi til ramma, setji lög og reglur og hafi yfirsýn, sveitarfélög fari með skipulagsvald, veiti leyfi og beri ábyrgð á innviðum og grunnþjónustu, mannvirkjaiðnaðurinn hanni og byggi íbúðir og bankar og lífeyrissjóðir fjármagni bæði uppbyggingu og íbúðakaup. Hver geri sitt en það dugi ekki til að mæta þörfum landsmanna vegna þess að það skorti samhljóminn. Halla og Sigurður segja að þarna þurfi ríkisvaldið að taka meiri ábyrgð með stefnumörkun, samtali og aðhaldi, hvötum og skýrum reglum.

Áskorun til stjórnvalda

Í niðurlagi greinar sinnar segja þau að mörgu sé að hyggja og marga þurfi til að bæta úr en samstaða VR og SI í húsnæðismálum sé áskorun til stjórnvalda um að breyta vilja í verk, taka ábyrgð, gefa raunhæfar væntingar og ráðast í umbætur sem leiða til stöðugleika. Samstaða VR og SI sé einnig hvatning til annarra að leggja sín lóð á vogarskálarnar í þessum málaflokki. Það sé ljóst að áskoranir séu margar og finna þurfi markvissar leiðir að stöðugleika. „Núverandi staða er óásættanleg og til mikils er að vinna fyrir samfélagið allt að bæta úr.“

Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.

Morgunblaðið, 7. febrúar 2026.

Morgunbladid-07-02-2026