Fréttasafn



19. mar. 2026 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

Menntaður mannauður forsenda uppbyggingar

Í nýrri greiningu SI kemur fram að mikill vöxtur hafi verið í byggingariðnaði og mannvirkjagerð á undanförnum árum. Hins vegar hafi undanfarið sést merki um samdrátt í greininni samhliða hægari gangi í efnahagslífinu. Lausum störfum í greininni hefur fækkað og atvinnuleysi aukist. Samdráttur hefur verið í fjölda íbúða í byggingu en háir vextir, mikil verðbólga og hækkun á sköttum og gjöldum er meðal þess sem hefur dregið úr uppbyggingu.

Starfandi-i-byggingaridnadi-og-mannvirkjagerd

Lykilþáttur í starfsemi greinarinnar er mannauður, en alls starfa nú tæplega 20 þúsund manns í greininni, eða 9% af heildarfjölda starfandi á íslenskum vinnumarkaði. Starfandi í greininni hefur fjölgað um nær 11 þúsund á síðustu 15 árum í takti við aukna uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis og innviða. Þetta jafngildir um 17% af heildarfjölgun starfandi í öllu hagkerfinu á þeim tíma. Þetta sýnir að greinin er ein af stærstu og mikilvægustu atvinnugreinum landsins og drifkraftur aukinnar verðmætasköpunar.

Stjórnendur fyrirtækja í greininni telja að samdrátturinn sé tímabundinn og að fyrirtæki þeirra þurfi að fjölga starfsfólki þegar litið er til næstu ára. Samkvæmt könnun Gallup, sem gerð var fyrir Samtök iðnaðarins í febrúar síðastliðnum telja 45% stjórnenda að stöðugildum muni fjölga á næstu fimm árum. Þá gera 50% ráð fyrir óbreyttum fjölda starfsmanna og aðeins 5% sjá fyrir sér fækkun. Þess utan er þörf á nýliðun í greininni sem er nauðsynleg til að vega upp á móti þeim sem hætta sökum aldurs eða annarra ástæðna. Því má gera ráð fyrir því að eftirspurn eftir nýju starfsfólki verði mikil þegar litið er til næstu ára.

Hér er hægt að nálgast greininguna í heild sinni.