Fréttasafn



29. maí 2026 Almennar fréttir Mannvirki Menntun Samtök rafverktaka

Ný stjórn Öryggisskóla iðnaðarins

Ný stjórn Öryggisskóla iðnaðarins var kosin á aðalfundi skólans sem fór fram í vikunni. Öryggisskóli iðnaðarins hóf formlega starfsemi árið 2025 með það að markmiði að efla öryggismenningu innan mannvirkjagerðar og stuðla að öruggara vinnuumhverfi í íslenskum iðnaði. Fyrsta starfsár skólans einkenndist af uppbyggingu, þarfagreiningu og þróun náms og fræðslu sem ætlað er að mæta raunverulegum þörfum atvinnulífsins. Öryggisskóli iðnaðarins er samstarfsverkefni Iðunnar fræðsluseturs og Rafmenntar og starfar í þágu almannaheilla með það markmið að draga úr slysum í iðnaði. Með áframhaldandi samstarfi atvinnulífs, fræðsluaðila og stjórnvalda skapast mikilvægt tækifæri til að efla öryggismenningu á íslenskum vinnustöðum og stuðla að öruggari mannvirkjagerð til framtíðar.

Skólinn var stofnaður í desember 2024 og fyrsti starfsmaður hóf störf í febrúar 2025. Frá upphafi hefur áhersla verið lögð á að byggja upp öfluga öryggismenningu með markvissri fræðslu, þjálfun og aukinni vitund um mikilvægi öryggis á vinnustöðum.

Þarfagreining lagði grunn að starfseminni

Eitt af fyrstu verkefnum skólans var ítarleg þarfagreining á öryggismálum innan mannvirkjagerðar. Þar voru tekin viðtöl við öryggisstjóra, mannauðsstjóra og eigendur fyrirtækja til að kortleggja stöðu öryggismála og helstu áskoranir atvinnulífsins. Niðurstöðurnar sýndu meðal annars að fyrirtæki leggja sífellt meiri áherslu á öryggismál, en að áfram sé þörf á samræmdri fræðslu, aukinni eftirfylgni og sterkari öryggismenningu. Sérstök áhersla var lögð á ábyrgð stjórnenda, opið samtal og fræðslu sem byggir á raunverulegum aðstæðum á verkstöðum.

Sóttu fyrirmyndir til Norðurlanda

Á árinu fóru fulltrúar Öryggisskólans ásamt samstarfsaðilum í kynnis- og námsferðir til Svíþjóðar, Noregs og Finnlands þar sem skoðaðar voru lausnir í öryggisfræðslu og uppbyggingu öryggismenningar. Þar var meðal annars kynnt HOP-aðferðafræðin (Human & Organizational Performance) sem leggur áherslu á að læra af mistökum, bæta verkferla og efla sameiginlega ábyrgð á öryggi. Reynslan af heimsóknunum staðfesti mikilvægi þess að stjórnendur taki virkan þátt í öryggismálum og að öryggi sé órjúfanlegur hluti af daglegri starfsemi fyrirtækja.

Fyrstu námskeiðin prufukeyrð

Haustið 2025 voru fyrstu prufunámskeið skólans haldin fyrir stjórnendur og millistjórnendur í mannvirkjagerð. Námskeiðin voru þróuð með áherslu á virka þátttöku, opið samtal og raunhæfar aðstæður sem endurspegla vinnuumhverfi á verkstöðum. Þrjú prufunámskeið voru haldin og nýttust þau til að þróa kennsluaðferðir og efla samtal um ábyrgð stjórnenda í öryggismálum. Þá var jafnframt ákveðið að næstu námskeið myndu meðal annars beinast að framkvæmdastjórum, fjárfestum og starfsfólki á verkstöðum með sérstaka áherslu á forvarnir gegn fallslysum.

Uppbygging heldur áfram

Á starfsárinu var einnig unnið að uppbyggingu tengslanets, þróun ímyndar skólans og leit að framtíðaraðstöðu fyrir verklega öryggisþjálfun. Heimasíða og lógó skólans voru sett í loftið og undir lok árs skapaðist möguleiki á húsnæði að Stórhöfða 27 fyrir kennslu og æfingar í raunhæfu vinnuumhverfi.

Hér er hægt að nálgast ársskýrslu skólans. 

Stjórn og starfsfólk Öryggisskólans, Vilborg Helga Harðardóttir, stjórnarformaður, Hermann Sigurðsson, markaðsfulltrúi, Ásdís Gréta Hjálmarsdóttir, leiðtogi, og Þór Pálsson meðstjórnandi.

20260527_125811