Rafrænn fundur um eftirlit með byggingarvörum
SI og HMS stóðu fyrir vel sóttum rafrænum fundi um eftirlit með byggingarvörum í gær en hátt í 70 manns sátu fundinn. Á fundinum kynntu fulltrúar HMS átak í markaðseftirliti með byggingarvörum í samræmi við lög um byggingarvörur. Eftirlitið nær til framleiðenda, innflytjenda og annarra seljenda en einnig til fagaðila í byggingariðnaði, s.s. hönnuða, iðnmeistara, byggingarstjóra og byggingarfulltrúa.
Á fundinum töluðu Jóhann Ólafsson, framkvæmdastjóri á sviði öryggis mannvirkja hjá HMS, og Þórunn Sigurðardóttir, sérfræðingur á sviði öryggis mannvirkja hjá HMS. Á fundinum kom meðal annars fram að markaðseftirlit HMS annist upplýsingagjöf um byggingarvörur og lögin sem um þær gilda. Markaðurinn hafi óskað eftir aukinni upplýsingagjöf sem HMS vilji bregðast við og því sé vinna við gerð fræðsluefnis og námskeiða hafin. Björg Ásta Þórðardóttir, yfirlögfræðingur SI, var fundarstjóri.
Hér er hægt að nálgast glærur fundarins frá HMS:
Jóhann Ólafsson, framkvæmdastjóri á sviði öryggis mannvirkja hjá HMS.
Þórunn Sigurðardóttir, sérfræðingur á sviði öryggis mannvirkja hjá HMS.
Björg Ásta Þórðardóttir, yfirlögfræðingur SI, var fundarstjóri.