Fréttasafn



9. feb. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

SI og SAFL vara við breytingum á búvörulögum

Samtök iðnaðarins (SI) og Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) hafa skilað inn umsögnum um búvörulög þar sem samtökin vara við breytingum sem eru áformuð er að gera. Í umsögnunum kemur fram að frumvarpið skapi ófyrirsjáanleika og óvissu í starfsumhverfi landbúnaðarframleiðslu á tímum þar sem óvissa er þegar mikil.

Í umsögn SI kemur fram að frumvarpið sé ekki til þess fallið að skapa samkeppnishæft starfsumhverfi og kunni að draga úr verðmætasköpun og viðnámsþrótti matvælaframleiðslu. Nú ætti fremur að skapa skilyrði fyrir aukna verðmætasköpun, sem stuðli einnig að auknu áfallaþoli og bættu fæðuöryggi.

Í umsögn SI kemur einnig fram að sérstakar eftirlitsheimildir frumvarpsins gangi allt of langt og séu í þversögn við samstarfsheimildir og skapi fullkominn ófyrirsjáanleika um framkvæmd. 

SAFL bendir á í sinni umsögn að frumvarpið boði stefnubreytingu við nálgun á landbúnaðarframleiðslu. Þá kemur fram í umsögn SAFL að skráningarskylda og opin skilyrði eftirlitsheimilda geri regluverk og eftirlit það matskenndasta og flóknasta sem finnist innan EES-svæðisins. Einnig kemur fram að tilgangur og nauðsyn breytinganna séu óljós, greinargerð veiti ekki fullnægjandi skýringar og fullkomin óvissa sé um afleiðingar af breytingunum.

Jafnframt segir að samstarfsheimildir í landbúnaði séu takmarkaðar og látið hjá líða að geta þess eða færa fyrir því skýringar og rök. Fyrirkomulagi mjólkurframleiðslu með 7,5 milljarða kr. hagræðingu á hverju ári sé teflt í tvísýnu sem og hagræðingarmöguleikum í kjötframleiðslu. 

Í niðurlagi umsagnarinnar kemur fram að SAFL leggist alfarið gegn samþykkt frumvarpsins. Í frumvarpinu felst stefnubreyting þar sem markmið búvörulaga og forgangur íslenskrar landbúnaðarstefnu sé vikið til hliðar og markmið samkeppnislaga sett þeim framar, öfugt við það sem þekkist annars staðar innan EES-svæðisins.

Hér er hægt að nálgast umsögn SI.

Hér er hægt að nálgast umsögn SAFL.