Fréttasafn



8. nóv. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

Þekktur danskur arkitekt með fyrirlestur í Gamla bíói

Í tilefni af útgáfu íslenskrar þýðingar á bókinni Mannlíf milli húsa (Livet mellem husene) verður hinn þekkti danski arkitekt Jan Gehl með fyrirlestur í Gamla bíói fimmtudaginn 15. nóvember kl. 17.00. ÚRBANISTAN, sem gefur bókina út, stendur fyrir viðburðinum í samstarfi við Reykjavíkurborg,Skipulagsstofnun, Listaháskóla Íslands, Klasa, Icelandair Hotels, Arkitektafélag Íslands, Félag
íslenskra landslagsarkitekta, SAMARK og Hönnunarmiðstöð.


Jan-GehlBókin sem kom fyrst út árið 1971 í Kaupmannahöfn fól í sér uppgjör við kaldranalegar borgir og íbúðahverfi eftirstríðsáranna. Síðan eru liðin tæp fimmtíu ár en bókin á ennþá fullt erindi eins og Jan Gehl kemst sjálfur að orði: „Undanfarnir áratugir hafa sýnt svo ekki verður um villst að viðleitnin til þess að styrkja mannlíf í borgum og byggðum er enn ofarlega á baugi. Samfélagsþróun og allir heimsins rafrænu miðlar hafa ekki dregið úr mikilvægi þess að fólk komi saman, nema síður sé.“

Í fyrirlestrinum setur Gehl viðfangsefni bókarinnar í samhengi við þróun borga og byggða í samtímanum. Einnig fjallar hann um aðferðarfræðina sem bókin sprettur úr og áhrif hennar víða um heim. Að loknum fyrirlestri gefst tími fyrir spurningar og umræður. 

Hér er hægt að nálgast viðburðinn á Facebook.