Fréttasafn



8. apr. 2019 Almennar fréttir Menntun

Ungmenni geta valið úr 100 starfsnámsbrautum

Nú stendur yfir sá tími þar sem mikilvægar ákvarðanir eru teknar hjá fjölmennum hópi ungmenna sem eru að velja nám að loknum grunnskóla. Það er úr ótalmörgu að velja því 38 skólar eru að bjóða upp á nám á framhaldsskólastigi og þar af eru hátt í 20 þeirra með starfsnámsbrautir. Það eru hvorki meira né minna en 100 mismunandi starfsnámsbrautir í boði hér á landi og því úr miklu að velja fyrir unga nemendur. Þetta segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, í grein sinni sem birtist í helgarútgáfu Morgunblaðsins undir yfirskriftinni Starfsnám opnar dyr. 

Möguleikar á háum tekjum og fjölmörgum atvinnutækifærum

Guðrún segir þar jafnframt að það hafi sýnt sig að nemendur sem koma úr starfsnámi hafi möguleika á háum tekjum og geti valið úr fjölmörgum atvinnutækifærum. „En því má heldur ekki gleyma að með starfsnámi er hægt að taka samhliða fög sem leiða til stúdentsprófs ef hugurinn stefnir í áframhaldandi nám. Oft er það þannig að með starfsnám í farteskinu er hægt að halda á vit ævintýranna og fá vinnu hvar sem er í heiminum því námið opnar dyr víða um heim. Starfsnám getur líka gefið tækifæri til að stofna eigin rekstur og verða þannig sjálfstæður atvinnurekendi.“

Nám sem gæti fallið vel að áhugasviði

Þá hvetur hún foreldra ungmenna að kynna sér starfsnám og allt það sem þar er í boði, til dæmis með því að fara inn á vefsíðuna nemahvad.is. Það sé aldrei að vita nema þar leynist nám sem gæti einmitt fallið vel að áhugasviði ungra nemenda, opnað þeim nýjar dyr sem gæti leitt inn á farsælar brautir.

Hér er hægt að lesa grein Guðrúnar í heild sinni.