Fréttasafn



Fréttasafn (Síða 269)

Fyrirsagnalisti

11. apr. 2011 : Formannaskipti í Icelandic Gaming Industry (IGI)

Nýr stjórnarformaður hefur tekið við störfum í Icelandic Gaming Industry (IGI), en Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir tók við af Erlu Bjarneyju Árnadóttur. Erla Bjarney hefur sinnt formannsstörfum frá stofnun samtakanna en Sigurlína setið í stjórn frá árinu 2010. 

8. apr. 2011 : Norðlenskt atvinnulíf kallar á atvinnu- og nýsköpun

Nokkrir atvinnurekendur á Norðurlandi hafa tekið sig saman og sett af stað verkefni um vinnuhelgi almennings sem snýr að atvinnu-og nýsköpun í landinu. Til liðs við frumherjana gengu Háskólinn á Akureyri og Tækifæri hf og mun því fyrsta Nýsköpunarhelgin líta dagsins ljós þann 15.-17. apríl nk. í Háskólanum á Akureyri.

7. apr. 2011 : Erfið en afdrifarík ákvörðun

 

Þjóðaratkvæðagreiðsla um nýtt Icesave samkomulag fer fram á laugardaginn. Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur SI, segir að niðurstöður hennar geti haft veruleg áhrif á starfsumhverfi iðnaðarins.

5. apr. 2011 : Aðalfundur SA - Atvinnuleiðin út úr kreppunni

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram á Hilton Reykjavík Nordica - 7. apríl 2011, kl. 14.00 - 16.00. Að fundi loknum fer fram móttaka.

5. apr. 2011 : Tveir áhugaverðir fundir í dag

Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga stendur fyrir hádegisverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 5. apríl  kl. 12:00-13:30. Leitast verður við að svara þeirri spurningu hvers vegna stór fyrirtæki íhuga að flýja land.Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Félag atvinnurekenda og Samtök iðnaðarins efna til opins fundar um Icesave þjóðaratkvæðagreiðsluna og áhrif niðurstaðna hennar á efnahagsþróun. Fundurinn hefst kl. 16:00 og lýkur um 17:30.

4. apr. 2011 : Ný skýrsla um skólamáltíðir

Út er komin skýrsla um skólamáltíðir á Norðurlöndum á vegum Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar, NICe. Skýrslan er afrakstur verkefnis sem unnið var í samstarfi allra Norðurlandanna og var stýrt af Samtökum iðnaðarins. Að verkefninu stóðu svokallaðir þróunarvettvangar á sviði matvæla í löndunum og er m.a. gerð grein fyrir starfsemi þeirra.

4. apr. 2011 : Nýr starfsmaður SI - Katrín Dóra Þorsteinsdóttir

 

Katrín Dóra Þorsteinsdóttir hefur hafið störf hjá Samtökum iðnaðarins sem forstöðumaður hugverkaiðnaðar og mannauðs. Katrín Dóra er með B.Sc. í  viðskipta- og rekstrarfræði og MBA frá Háskólanum í Reykjavík.

30. mar. 2011 : 168 ný störf sköpuð innan Innovit-hagkerfisins

Í nýútkominni rannsókn á Innovit-hagkerfinu má sjá greinileg merki um öran vöxt nýrra sprotafyrirtækja á Íslandi og mikilvægi þeirra í atvinnusköpun hér á landi. Fjöldi nýrra starfa innan Innovit-hagkerfisins hefur aukist um 63% á milli ára og starfa nú alls 168 einstaklingar hjá 38 sprotafyrirtækjum.

30. mar. 2011 : Íslenskar konur í nýsköpun halda fyrstu ráðstefnuna í Hörpu

Samtök frumkvöðlakvenna ætla að halda glæsilega alþjóðlega ráðstefnu í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu þann 25. – 26. maí næstkomandi. Þetta verður fyrsta ráðstefnan sem fram fer í Hörpu og er gert ráð fyrir að minnsta kosti 300 manns víðsvegar að úr heiminum.

29. mar. 2011 : Umhverfisráðherra fer rangt með

Umhverfisráðherra hefur á Alþingi og víðar kvartað yfir því að Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins sýni ekki nægan metnað í umhverfismálum fyrir hönd fyrirtækja landsins. Þessi staðhæfing ráðherra er röng.

25. mar. 2011 : Íslenskur hugbúnaður kemur til álita hjá San Francisco borg

Íslenskur hugbúnaður, MainManager frá ICEconsult, hefur verið valinn í hóp fimm bestu lausna í alþjóðlegri samkeppni á vegum Living Labs Global sem hefur það að markmiði að kynna nýjungar á sviði þjónustu í borgum.

24. mar. 2011 : HönnunarMars hefst í dag

HönnunarMars er fjögurra daga hönnunarhátíð í Reykjavík þar sem dagskráin er barmafull af fjölbreyttum og spennandi viðburðum af ýmsu tagi. Hönnuðir bjóða almenningi að kynna sér heim hönnunar með áhugaverðum sýningum og fróðlegum fyrirlestrum sem endurspegla fjölbreytta flóru íslenskrar hönnunar og arkitektúrs.

24. mar. 2011 : Össur hf. hlýtur alþjóðlegu Red Dot hönnunarverðlaunin

Össur hf. vann tvenn verðlaun í hinni virtu alþjóðlegu hönnunarsamkeppni sem kennd er við Red Dot samtökin. Í ár voru 4433 vörur frá sextíu löndum sem kepptu um þessi virtu verðlaun í átján flokkum.

23. mar. 2011 : Íslenskt ríkisaðstoðarkerfi til stuðnings nýsköpunarfyrirtækjum samþykkt

ESA samþykkti í dag ríkisaðstoðarkerfi til stuðnings nýsköpunarfyrirtækjum. Markmið þess er að bæta og styðja við rannsóknir og tækniþróun. Nánari upplýsingar varðandi umsóknir 2010 og framhaldsumsóknir verða birtar á heimasíðu Rannís á næstunni.

23. mar. 2011 : Alcoa veitti 148 milljónir króna til samfélagsstyrkja árið 2010

Alcoa Fjarðaál og Samfélagssjóður Alcoa veittu tæplega 50 styrki til samfélagsverkefna á síðasta ári að upphæð 148 milljónir króna. Hæsta styrkinn, 87 milljónir króna fengu Vinir Vatnajökuls, samtök sem voru stofnuð í því skyni að efla og kynna Vatnajökulsþjóðgarð, bæði á Íslandi og í útlöndum.

21. mar. 2011 : Hönnun í útflutning

Íslandsstofa, Hönnunarmiðstöð Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Samtök iðnaðarins auglýsa eftir umsóknum fyrirtækja um þátttöku í þróunarverkefninu Hönnun í  útflutning. Umsóknarfrestur er til 27. apríl nk.

15. mar. 2011 : Útboðsþing SI - Opinberar framkvæmdir fyrir 51 milljarð

Árlegt útboðsþing Samtaka iðnaðarins um verklegar framkvæmdir var haldið í dag á Grand Hótel Reykjavík. Kynntar voru opinberar framkvæmdir fyrir 51 milljarð. Hér má nálgast glærur framsögumanna.

14. mar. 2011 : UT messan 18. og 19. mars

UTmessan verður haldin í fyrsta sinn 18. og 19. mars. Tilgangur UT messunnar 2011 er að vekja athygli á mikilvægi upplýsingatækninnar og áhrifum hennar á einstaklinga, fyrirtæki og íslenskt samfélag.

11. mar. 2011 : Nýsköpun alls staðar - Iðnþing 2011

Tæplega 300 manns sóttu Iðnþing Samtaka iðnaðarins í gær þar sem rætt var um nýsköpun sem leið til endurreisnar í íslensku atvinnulífi.  Helgi Magnússon formaður SI og Katrín Júlíusdóttir ávörpuðu þingið og að því loknu héldu erindi Andri Þór Guðmundsson, Guðrún Högnadóttir, Tatjana Latinovic, Jón Ágúst Þorsteinsson og Orri Hauksson.

11. mar. 2011 : Helgi Magnússon endurkjörinn formaður SI

 

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í gær var Helgi Magnússon endurkjörinn formaður samtakanna. Í stjórnina voru endurkjörnir þeir Tómas Már Sigurðsson og Andri Þór Guðmundsson. Ný inn í stjórnina koma Guðrún Hafsteinsdóttir og Kolbeinn Kolbeinsson en úr stjórninni ganga Aðalheiður Héðinsdóttir og Loftur Árnason eftir sex ára starf.

Síða 269 af 287