Fréttasafn



Fréttasafn (Síða 280)

Fyrirsagnalisti

29. mar. 2010 : Plastprent opnar verslun

Ný verslun Plastprents hf. hefur opnað að Fosshálsi 17-25 í Reykjavík. Nokkrir innlendir framleiðendur og heildsalar eru í samstarfi við félagið í kringum verslunina en þeir eru m.a. Oddi, Papco, Besta, Takk Hreinlæti o.fl. smærri aðilar. Nýja verslunin hefur fengið nafnið Umbúðin.

26. mar. 2010 : Aukafjárveiting í Nýsköpunarsjóð námsmanna

Vegna aukafjárveitingar til Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur nú verið ákveðið að auglýsa að nýju eftir umsóknum í sjóðinn. Þetta er kjörið tækifæri fyrir fyrirtæki til að ráða háskólastúdenta til sumarstarfa við nýsköpun og þróun. Frestur til að skila inn umsóknum er mánudagurinn 12. apríl klukkan 16.00. Úthlutun úr sjóðnum liggur síðan fyrir í byrjun maí.

25. mar. 2010 : Banna, banna

Ögmundur Jónasson leggur í fimmta sinn fram tillögu um að skerða samkeppnisstöðu innlendra bjórframleiðenda gagnvart erlendum. "Vonandi fer fyrir frumvarpi Ögmundar á sama veg og í hin skiptin fjögur, segir framkvæmdastjóri SI.

25. mar. 2010 : Nox Medical hlaut Nýsköpunarverðlaun

Nox Medical hlaut Nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs árið 2010 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í gær. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra afhenti Sveinbirni Höskuldssyni framkvæmdastjóra Nox Medical verðlaunin.

24. mar. 2010 : Verðbólguþróun og vaxtastefna umhugsunarefni

„Hækkun verðbólgunnar kemur ekki á óvart og skýrist að nokkru af árstímabundnum útsölulokum og bensínhækkunum. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að verðbólgan er mjög há og ekkert lát virðist vera á kaupmáttarrýrnun landsmanna“, segir Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Hagstofan birti í morgun nýjar verðbólgutölur sem sýna að verðbólga mælist nú 8,5% og hefur hækkað talsvert frá fyrra mánuði. Án húsnæðis mælist verðbólgan nú 12%.

24. mar. 2010 : Nemakeppni Kornax 2010

Hin árlega Nemakeppni Kornax var haldin í 13. sinn dagana 17. og 18. mars í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Þátttakan var með besta móti í ár en 8 bakaranemar skráðu sig til leiks. Rebekka Helen Karlsdóttir frá Brauða- og kökugerðinni Akranesi bar sigur úr býtum.

24. mar. 2010 : Stóriðjan hefur ekki sóst eftir tilslökunum á umhverfiskröfum

Könnun sem Fréttablaðið birti í gær gefur til kynna að 58% aðspurðra væri andsnúinn tilslökun á umhverfiskröfum til að greiða fyrir stóriðjuframkvæmdum. Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir þessa könnun undarlega og gefa til kynna að stóriðjufyrirtækin séu að sækjast eftir slíku.

23. mar. 2010 : Alcoa prófar nýja tækni til að virkja sólarorku

Alcoa og rannsóknamiðstöð orkumálaráðuneytis Bandaríkjanna um endurnýjanlega orkugjafa vinna nú að prófunum á nýrri tækni til að virkja sólarorku. Markmiðið er að lækka kostnað við gerð og rekstur sólarspegla til raforkuframleiðslu (e. Concentrating Solar Power technology) og gera þá samkeppnishæfa við aðrar leiðir til orkuframleiðslu.

23. mar. 2010 : Nýtt MA- og diplómanám í Evrópufræðum

Í haust hefst við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands nýtt MA- og diplómanám í Evrópufræðum. Forkröfur fyrir námið eru BA-próf í einhverri grein. Námið verður kynnt á Námskynningu í HÍ næsta fimmtudag, 25. mars, á Háskólatorgi frá kl. 16:00-18:00.

22. mar. 2010 : Vel heppnað Íslandsmót iðn- og verkgreina

Íslandsmót iðn- og verkgreina, Skills Iceland, fór fram í Smáralind dagana 18. og 19. mars. Þetta var í fimmta sinn sem mótið var haldið og það stærsta hingað til á Íslandi. Mikill mannfjöldi fylgdist með mótinu sem stóð yfir í tvo daga og lauk kl. 18.00 á föstudag með afhendingu viðurkenningaskjala og verðlaunapeninga.

19. mar. 2010 : Viðhaldsvinna frádráttarbær

Fjármálaráðherra kynnti á fundi í morgun frumvarp sem gerir ráð fyrir að kostnaður vegna vinnu iðnaðarmanna við íbúðarhúsnæði og sumarhús verði frádráttarbær. "Örvandi og jákvæð aðgerð sem vonandi kemur einhverri hreyfingu á annars daufan markað" segir Árni Jóhannsson forstöðumaður mannvirkjasviðs SI.

19. mar. 2010 : Verkefnastjórn í stóru framkvæmdaverki

Verkefnastjórnunarfélag Íslands stendur fyrir hádegisfyrirlestri fimmtudaginn 25. mars n.k. kl. 12. 00 í húsi Verkfræðingafélagsins að Engjateigi 9. Hildur Ingvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur mun fjalla um stórt verkefni sem snýst um uppbyggingu fráveitu á veitusvæðum OR á Vesturlandi og hefur staðið frá árinu 2006.

19. mar. 2010 : Tilnefningar til Vaxtarsprota ársins

Vaxtarsproti ársins verður valinn í lok apríl í fjórða sinn. Frestur til að skila tilnefningum til forvals er til 26. mars n.k. Tilgangur Vaxtarsprotans er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukin áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

17. mar. 2010 : Skills Iceland - Íslandsmót iðn- og verkgreina 2010

Íslandsmót iðn- og verkgreina verður haldið í Vetrargarðinum í Smáralind dagana 18. – 19. mars nk. Mótið verður fjölbreytilegt og skemmtilegt en þar munu etja kappi 130 manns, allt ungt fólk, ýmist nemar eða nýútskrifaðir sveinar í faggreinunum. Keppt er í yfir 20 faggreinum auk þess sem fleiri greinar verða með sýningu á aðferðum og tækni.

17. mar. 2010 : Verðum að fá hreyfingu á fjármagnið

Vextir voru í dag lækkaðir um 0,5 prósentur. Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur SI segir fátt koma á óvart við þessa ákvörðun Seðlabankans. „Ég vænti þess að rök bankans verði á þá leið að smávægilegt svigrúm hafi skapast til lækkunar vaxta vegna þess að gengi krónunnar hefur verið að styrkjast lítillega eða m.ö.o. hafa gjaldeyrishöftin verið að halda bærilega.

16. mar. 2010 : Microsoft verðlaunar TM Software

Microsoft í Bandaríkjunum hefur veitt íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu TM Software , dótturfélagi Nýherja, viðurkenningu sem mikilvægasti samstarfsaðili þess í tæknilausnum í almannaöryggi.

16. mar. 2010 : Helga Valfells tekur við hjá Nýsköpunarsjóði

Stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins hefur ákveðið að ráða Helgu Valfells framkvæmdastjóra sjóðsins. Hún tekur við af Finnboga Jónssyni sem hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands.

11. mar. 2010 : Vandræðalegur umhverfisráðherra

Helgi Magnússon, formaður SI skrifaði grein í Morgunblaðið þann 8. mars sl. þar sem hann svarar gagnrýni Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra þess efnis að SI einblíni á virkjanir og stóriðju þegar kemur að uppbygginu efnahags- og atvinnulífs. Greinina má lesa hér.

10. mar. 2010 : Iðnaðurinn verður í lykilhlutverki

Sigurður Bragi Guðmundsson fyrrverandi stjórnarmaður SI og forstjóri Plastprents rekur nú iðnframleiðslufyrirtæki í Kína. Í viðtali í Viðskiptablaðinu 4. mars sl. fjallar hann um mikilvægi íslensks iðnaðar við uppbyggingu landsins og nauðsyn þess að Íslendingar skoði áherslur í atvinnumálum upp á nýtt þar sem ESB-aðild og ný mynt er lykilþáttur.

10. mar. 2010 : Gæðastjórnun 2010 - ný stefna í samræmismati og eftirliti

Ráðstefnan Gæðastjórnun 2010 verður haldin á Grand Hótel Reykjavík 11. mars kl. 09:00-11:30. Kynnt verður ný stefna í samræmismati og eftirliti af hálfu Evrópusambandsins og leiðir til að uppfylla kröfur.

Síða 280 af 287