Fréttasafn



Fréttasafn (Síða 244)

Fyrirsagnalisti

10. des. 2013 : Gestur G. Gestsson endurkjörinn formaður SUT

Á aðalfundi SUT – Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja föstudaginn 29. nóvember var kosin ný stjórn. Formaður samtakanna, Gestur G. Gestsson Advania var endurkosinn. Nýjir meðstjórnendur kosnir til tveggja ára eru Finnur Oddsson Nýherja, Heimir Fannar Gunnlaugsson Microsoft og Daði Kárason, LS Retail.

6. des. 2013 : Kjörís valið fyrirtæki ársins á Suðurlandi

Kjörís hefur verið valið fyrirtæki ársins í árlegri könnun sem Báran, stéttarfélag, og Verslunarmannafélag Suðurlands standa fyrir meðal félagsmanna sinna. Í öðru sæti hafnaði Landsvirkjun og Sláturfélag Suðurlands í því þriðja.

3. des. 2013 : Lögverndun iðngreina

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vinnur nú að endurskoðun iðnaðarlaga og áformar að fækka löggiltum iðngreinum. Óhætt er að segja að hugmyndirnar falli í grýttan jarðveg meðal forsvarsmanna iðngreina í landinu. Sigurður M. Guðjónsson, bakara- og kökugerðarmeistari fjallar um málið í grein í Morgunblaðinu í gær.

29. nóv. 2013 : Vöxtur fyrirtækja og frumkvöðla kallar á rétt umhverfi

Undanfarin fjögur ár hefur ein vika á ári verið helguð nýsköpunarfyrirtækjum og frumkvöðlum í Evrópu undir yfirskriftinni SME Week eða Evrópska fyrirtækjavikan. SME Week er haldin á vegum framkvæmdastjórnar ESB í 37 Evrópulöndum dagana 25.-30. nóvember.

29. nóv. 2013 : Michelsen úrsmiðir meðal þeirra fremstu

Michelsen Arctic Explorer er ein besta jólagjöfin í ár samkvæmt aBlogtoWatch.com, stærstu úrasíðu í heiminum. Arctic Explorer úrið er í góðum félagsskap á þessum lista en önnur heimsfræg merki sem mælt er með í pakkann í ár eru m.a. Rolex, Patek Philippe, Audemars Piguet, A. Lange & Söhne, Panerai og Tudor.

28. nóv. 2013 : Raki og mygla í byggingum – heilsa, hollusta, aðgerðir

Mikið fjölmenni sótti málþing um myglu og rakaskemmdir í byggingum sem haldið var á Akureyri á dögunum. Flutt voru mörg fróðleg erindi og fjörugar umræður sköpuðust í pallborðsumræðum.

27. nóv. 2013 : Starfsskilyrði og fjármögnun rædd á aðalfundi CTI

Aðalfundur CleanTech Iceland var haldinn á dögunum í Svartsengi. Gestir fundarins voru iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Steindór Pálsson bankastjóri Landsbankans. Ragnheiður Elín fjallaði um möguleika grænnar tækni til að vaxa og dafna hérlendis.

27. nóv. 2013 : Bætist í hóp vottaðra fyrirtækja innan SI

Jáverk ehf., Tengill ehf. og ÁK Smíði hlutu á dögunum D - vottun SI og Vestfirskir verktakar ehf. C - vottun. Sífellt fleiri fyrirtæki fara í gegnum áfangaskipta gæðavottun SI í þeim tilgangi að bregðast við aukinni samkeppni og gera reksturinn betri og arðvænni.

25. nóv. 2013 : Kristrún Heimisdóttir nýr framkvæmdastjóri SI

Kristrún Heimisdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, er nýr framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hún er mörgum kunn innan samtakanna frá því hún var lögfræðingur þeirra í nærri fimm ár, 2001 til 2006. Kristrún var valin af stjórn samtakanna úr hópi 45 umsækjenda um starfið.

23. nóv. 2013 : Gjaldeyrishöft lama atvinnulífið

Þegar gjaldeyrishöftunum var komið á haustið 2008 gerðu fæstir ráð fyrir því að þau væru komin til vera. Svana Helen Björnsdóttir fjallar um gjaldeyrishöftin og áhrif þeirra á atvinnulífið í grein í Fréttablaðinu.

22. nóv. 2013 : Sjóður stofnaður til eflingar forritunar og tækniþekkingu barna

Reiknistofa bankanna (RB) og Skema hafa ýtt úr vör sjóði sem ber nafnið„Forritarar framtíðarinnar.“ Meginhlutverk sjóðsins er að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Að sjóðnum koma fyrirtæki af öllum stærðum sem leggja honum lið á ýmsan máta, svo sem með fjárframlögum, tæknibúnaði, þekkingu og ráðgjöf.

22. nóv. 2013 : Áherslur og markmið Litla Íslands mótuð á opnum vinnufundi

Litla Ísland efndi til stefnumóts sl. miðvikudag til að fylgja eftir Smáþingi sem haldið var þann 10. október. Um opinn vinnufund var að ræða þar ræddar voru helstu áherslur og markmið í starfi Litla Íslands - nýs vettvangs þar sem lítil fyrirtæki vinna saman óháð atvinnugreinum.

21. nóv. 2013 : Trúin á manninn

Það er ekki síst í rekstri fyrirtækja sem skiptir máli að vera bjartsýnn og sjá lífið með jákvæðum augum. Að sjá færar leiðir og lausnir, sjá tækifæri og möguleika. Svana Helen Björnsdóttir, formaður SI fjallar um trúna á manninn, framkvæmdagleði og frumkvöðlaeðli í Kjarnanum.

19. nóv. 2013 : Nýr formaður hjá DCI

Aðalfundur samtaka gagnavera var haldinn föstudaginn 15. nóvember. Eyjólfur M. Kristinsson framkvæmdastjóri rekstrarlausna hjá Advania tók við formennsku af samstarfsmanni sínum Kolbeini Einarssyni. Aðrir stjórnarmenn eru Isaac Kato hjá Verne Holdings ehf. og Gunnar Zoëga hjá Nýherja.

19. nóv. 2013 : SME Week 2013

Undanfarin fjögur ár hefur ein vika á ári verið helguð nýsköpunarfyrirtækjum og frumkvöðlum í Evrópu undir yfirskriftinni SME Week eða Evrópska fyrirtækjavikan. Í ár hafa samstarfsaðilar á Íslandi ákveðið að efna til fjögurra málstofa undir yfirskriftinni „Viltu vaxa?“

19. nóv. 2013 : Norræna skráargatið innleitt á Íslandi

Norræna skráargatið hefur verið innleitt hér á landi. Matvælastofnun og Embætti landlæknis standa sameiginlega á bak við Skráargatið og hafa unnið að innleiðingu þess. Um er að ræða opinbert samnorrænt merki sem finna má á umbúðum matvara sem uppfylla ákveðin skilyrði varðandi innihald næringarefna

12. nóv. 2013 : Illframkvæmanlegt og óskynsamlegt réttlæti

Fyrir síðustu kosningar voru verðtryggð lán heimila sem höfðu stökkbreyst eitt helsta kosningamálið. Stjórnmálin hafa síðan að verulegu marki einkennst af umræðu um hvernig eigi að efna þetta loforð og fæstir eru nokkru nær. Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur SI skrifaði grein á mbl.is í liðinni viku.

11. nóv. 2013 : Kvennaskólinn sigraði í BOXINU

Fjöldi framhaldsskólanema lagði leið sína í Háskólann í Reykjavík í gær, laugardag, til að etja kappi í hugvitssemi og verkviti. Þetta var í þriðja skiptið sem Boxið – framkvæmdakeppni framhaldsskólanna var haldin en markmið keppninnar er að kynna og vekja áhuga á tækni, tækninámi og störfum í iðnaði.

8. nóv. 2013 : Helga Ósk Einarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2013

Helga Ósk Einarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2013 á sýningunni Handverk og hönnun sem haldin var í í Ráðhúsi Reykjavíkur í nóvember. Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík.

7. nóv. 2013 : Hefur þú tillögur um einföldun á regluverki?

Samtök iðnaðarins leggja fram tillögur að einföldun regluverks að ósk atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins þann 1. desember. Félagsmönnum SI gefst kostur að koma á framfæri hvaða möguleika þeir sjá á einföldun og aukinni skilvirkni á verklagi og regluverki fyrir iðnfyrirtæki með því að senda okkur línu á netfangið tillaga@si.is

Síða 244 af 287