Fréttasafn



Fréttasafn (Síða 241)

Fyrirsagnalisti

30. apr. 2014 : Nýr framkvæmdastjóri Skema

Árdís Ármannsdóttir  hefur verið ráðin til að gegna stöðu framkvæmdastjóra Skema. Hún tekur við af Þórunni Jónsdóttur sem mun flytjast til starfstöðva móðurfyrirtækis Skema, Rekode Education í Washington fylki í Bandaríkjunum.

30. apr. 2014 : Hægt að sækja um styrki í vinnustaðanámssjóð til 15. maí

Umsóknarfrestur Vinnustaðanámssjóðs vegna vinnustaðanáms á tímabilinu janúar-júní 2014 rennur út þann 15. maí. Fyrirtæki og stofnanir geta sótt um styrki vegna vinnustaðanáms nema í iðnnámi eða öðru námi á framhaldsskólastigi þar sem vinnustaðanám og starfsþjálfun er skilgreindur hluti námsins. 

28. apr. 2014 : Kaffitár hlýtur Kuðunginn

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, veitti Kaffitári Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Hvolsskóla á Hvolsvelli útnefndir Varðliðar umhverfisins.

23. apr. 2014 : Stjörnugarðar með D-vottun

Stjörnugarðar ehf. hefur staðist úttekt á fyrsta þrepi áfangaskiptrar gæðavottunar Samtaka iðnaðarins og hlotið D-vottun, fyrsta hluta gæðavottunarkerfis SI sem tekið er upp í fjórum áföngum. Með gæðavottunarkerfinu er stefnt að því að gera rekstur fyrirtækja skilvirkari.

22. apr. 2014 : Fáar íbúðir að koma á markað

Samtök iðnaðarins hafa lokið við talningu íbúða í framleiðslu á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt henni eru einungis 891 íbúðir á byggingarstigi 4-7 sem eru íbúðir frá fokheldi til fullbúinna eigna. Þetta er töluvert undir þörf markaðarins en talið er að árlega þurfi að byggja um 1500-1800 íbúðir.

9. apr. 2014 : Yfir 40 fyrirtæki og stofnanir mótuðu framtíðarsýn álklasans

Yfir 40 fyrirtæki og stofnanir komu saman á Hótel Borgarnesi dagana 1.-2. apríl til að móta framtíðarsýn og stefnu fyrir álklasann og áliðnaðinn í landinu. Samstarfsvettvangur um álklasa stóð fyrir fundinum ásamt Samtökum álframleiðenda og Samtökum iðnaðarins. 

31. mar. 2014 : Samtök arkitektastofa ganga í SI

Í dag voru undirritaðir samningar um aðild Samtaka arkitektastofa, SAMARK, að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, Ögmundur Skarphéðinsson formaður SAMARK og Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri SA skrifuðu undir samninga sem taka strax gildi.

25. mar. 2014 : Malbikun KM hlýtur D - vottun

Malbikun KM ehf. hefur staðist úttekt á fyrsta þrepi áfangaskiptrar gæðavottunar Samtaka iðnaðarins og hlotið D-vottun. D-vottun er fyrsti hluti gæðavottunarkerfis SI sem tekið er upp í fjórum áföngum.

25. mar. 2014 : Auglýst eftir tilnefningum til Kuðungsins

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2013.

24. mar. 2014 : Matvælalandið ísland

Matvælalandið Ísland hélt ráðstefnu á Hótel Sögu fimmtudaginn 20. mars undir yfirskriftinni „Vöxtur í ferðaþjónustu – er maturinn tilbúinn?“. Á ráðstefnunni var fjallað um þróun matarferðamennsku hér heima og erlendis og tækifærin sem hún felur í sér.

21. mar. 2014 : Hreinleiki íslenskra kjúklinga er staðreynd

Í nýrri frétt á vef Matvælastofnunar er fjallað um varnir gegn örverusmiti í íslenskum kjúklingum í tilefni af leiðara Fréttablaðsins 11. mars s.l. „Hreinleikinn reynist goðsögn“ þar sem fjallað er um niðurstöðu úttektar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) á opinberu eftirliti með alifuglasláturhúsum- og afurðastöðvum.

21. mar. 2014 : Hönnunarmars 27. - 30. mars

HönnunarMars hefst í næstu viku og verður settur formlega fimmtudaginn 27. mars og stendur til sunnudagsin 30. mars. Það eru íslenskir hönnuðir og arkitektar sem bera hitann og þungann af dagskrá hátíðarinnar og í ár bjóða þeir til fyri 100 viðburða, innsetninga og sýninga víða um borg yfir hátíðardagana.

20. mar. 2014 : Breytingar í stjórn LABAK

Aðalfundur Landssambands bakarameistara, LABAK, var haldinn 15. mars síðastliðinn. Jóhannes Felixson ákvað að draga sig í hlé eftir að hafa setið í stjórn undanfarin 16 ár, þar af 7 sem formaður. Nýr formaður LABAK er Jón Albert Kristinsson, bakarameistari, Björnsbakaríi.

19. mar. 2014 : Vöxtur í ferðaþjónustu – er maturinn tilbúinn?

Matvælalandið Ísland boðar til ráðstefnu á Hótel Sögu fimmtudaginn 20. mars klukkan 12.00-16.30. Á ráðstefnunni verður fjallað um þróun matarferðamennsku hér heima og erlendis og tækifærin sem hún felur í sér.

11. mar. 2014 : Morgunfundur Litla Íslands um fjármögnun lítilla fyrirtækja

Föstudaginn 14. mars efnir Litla Ísland til morgunfundar í Húsi atvinnulífsins kl. 9-10 þar sem verður rætt um fjármögnun lítilla fyrirtækja. Fulltrúar Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans mæta til fundarins og kynna þá þjónustu sem sérsniðin er að þörfum lítilla fyrirtækja.

10. mar. 2014 : Dörthe Zenker sigraði í nemakeppni Kornax í bakstri

Úrslit í Nemakeppni Kornax í bakstri voru tilkynnt á sýningarsvæði Íslandsmóts iðn- og verkgreina í gær. Fjórir nemar kepptu til úrslita, Dörthe Zenker, nemi hjá Almari bakara, Hrafnhildur A. K. Sigurðardóttir, nemi hjá Hérastubbi, Magnús Steinar Magnússon, nemi hjá Reyni bakara og Stefán Gaukur Rafnsson, nemi hjá Sveinsbakaríi.

10. mar. 2014 : Mesti hagvöxtur síðan 2007

Á síðasta ári var hagvöxtur 3,3% og hefur ekki mælst meiri síðan 2007. Hagstofan birti fyrir helgi fyrstu hagvaxtatölur fyrir síðasta ár í heild sinni. Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir að þetta séu vissulega jákvæð tíðindi en hins vegar rími þau ekki nógu vel við mat félagsmanna SI á núverandi stöðu í efnahagslífinu.

7. mar. 2014 : Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður Samtaka iðnaðarins

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í dag var Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður Samtaka iðnaðarins. Endurkjörin í stjórn voru þau Bolli Árnason, GT Tækni, Vilborg Einarsdóttir, Mentor og Sigsteinn Grétarsson, Marel. Nýr í stjórn var kjörinn Eyjólfur Árni Rafnsson, Mannviti.

5. mar. 2014 : Iðnþing 2014 - Myndbönd frá Iðnþingi

Fullt var út að dyrum á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins. Mörg spennandi og áhugaverð erindi voru flutt og fengu góðar viðtökur gesta. Hér er hægt að horfa á upptöku af þinginu.

4. mar. 2014 : Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kynntar

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2013 voru kynntar í dag en þetta er fimmtánda árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 21 fyrirtæki í 6 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á 200-1300 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis.

Síða 241 af 287