Fréttasafn (Síða 264)
Fyrirsagnalisti
Eyjablikk og Litamálun bætast í hóp vottaðra fyrirtækja
Eyjablikk ehf. og Litamálun eru komin í hóp þeirra fyrirtækja sem fengið hafa staðfestingu á að þau fullnægi kröfum D-vottunar í áfangaskiptri gæðavottun SI.
SI saka Lýsingu um undanbrögð
Lögmaður Lýsingar lýsti því yfir í tölvupósti til skiptastjóra Kraftvélaleigunnar að fyrirtækið myndi una dómi Hæstaréttar í máli sem féll á föstudag en ætlar samt í mál við aðra viðsemjendur sína. Þetta kemur fram í frétt á visir.is. Samtök iðnaðarins segja það undanbrögð hjá Lýsing
Betware skrifar undir samning við Cirsa
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Betware hefur skrifað undir samning við Cirsa Gaming Corporation frá Spáni. Í samningnum felst að Cirsa mun nýta sér leikja- og hugbúnaðarlausn Betware fyrir Internet- og snjallsímavefi fyrirtækisins á Spáni og í fleiri löndum.
Íslenskur súrefnismælir í notkun víða um heim
Allar fjármögnunarleigur virði niðurstöðu Hæstaréttar - Leitað álits Fjármálaeftirlitsins
Fyrirtæki í skjóli bankanna þremur árum eftir hrun
Fréttablaðið greindi frá því í gær að bankinn hefði nýverið aukið hlutafé Pennans, sem er í 100% eigu félags í eigu Arion, um 200 milljónir króna þrátt fyrir að fyrirtækið hefði tapað rúmum milljarði króna á síðustu tveimur árum. Augljós skekkja á markaðinum segir Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI.
Fyndnir milljarðar frá útlöndum
Gengistrygging fjármögnunarleigusamninga dæmd ólögleg í Hæstarétti
Hæstiréttur felldi í dag dóm um að fjármögnunarleigusamningar eru ólögleg erlend lán. Dómurinn er í samræmi við hæstaréttardóm um kaupleigusamninga sem féll í fyrrasumar. Niðurstaðan gríðarlega mikilvæg fyrir þau fjölmörgu fyrirtæki sem fjármögnuðu tæki og tól með þessum samningum.
Gullsmiðadagurinn
Laugardaginn 22. október nk. munu félagar í Félagi íslenskra gullsmiða (FÍG) halda hátíðlegan Gullsmiðadaginn. Gullsmiðir bjóða þennan dag gestum og gangandi að koma með uppáhaldsskartgripinn sinn, fá létt þrif á honum og spjalla við fagmanninn.
Nýtt rit um umhverfisvottanir
Út er komið rit um umhverfisvottanir, umhverfismerki og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Gefið er yfirlit yfir vottanir og staðla sem standa fyrirtækjum til boða. Rætt er við aðila sem hafa reynslu af því að taka upp umhverfisstjórnun eða hafa fengið vottun á vörur og þjónustu.
Myllan hlýtur Fjöreggið á Matvæladegi MNÍ 2011
Ekkert álver á Bakka – Enn einn erlendi fjárfestirinn hverfur frá
Alcoa tilkynnti í gær að hætt hefði verið við byggingu álvers á Bakka við Húsavík. Þar með hverfur enn einn erlendi fjárfestirinn frá fjárfestingum á Íslandi, þrátt fyrir að hafa varið mörgum árum og á annan milljarð í undirbúning. Alcoa hefur í samvinnu við heimamenn fyrir norðan, Landsvirkjun og stjórnvöld unnið að þessu verkefni síðan 2005.
12% í svartri vinnu
Hugvitið er næsta stórvirkjun þjóðarinnar - Samhljómur í stefnu stjórnvalda og hugverkaiðnaðar
Fulltrúar tækni-og hugverkafyrirtækja, stuðningsaðilar og alþingismenn komu saman í fjórða sinn á Tækni- og hugverkaþingi 2011 sl. föstudag undir kjörorðinu Nýsköpun – uppspretta verðmæta.
Boxið - Framkvæmdakeppni framhaldsskólanna
Samtök Iðnaðarins, Háskólinn í Reykjavík og Samband íslenskra framhaldsskólanema standa fyrir framkvæmdakeppni framhaldsskólanna. Markmiðið með keppninni, sem fengið hefur nafnið BOXIÐ, er að kynna og vekja áhuga á tækni, tækninámi og störfum í iðnaði. Keppnin fer fram í Háskólanum í Reykjavík dagana 4.- 5. nóvember 2011.
Ný stjórn kosin á aðalfundi IGI
Á aðalfundi IGI – samtaka íslenskra tölvuleikjaframleiðenda sem haldinn var miðvikudaginn 28. september var kosinn ný stjórn. Nýr formaður er Sigurður Eggert Gunnarsson frá Gogogic en hann tekur við kyndlinum af Sigurlínu V. Ingvarsdóttur hjá CCP.
Fjallað um málm í fyrsta hádegiserindi Toppstöðvarinnar og SI
Fyrsta hádegiserindi Toppstöðvar og Samtaka iðnaðarins fór fram í dag í húsnæði Toppstöðvarinnar. Daníel Óli Óðinsson, framkvæmdastjóri Járnsmiðju Óðins fjallaði um málm og eiginleika hans, framboð til framtíðar, vinnslumöguleika, horfur og þróun.
Evrópska fyrirtækjavikan 2011 - fjöldi áhugaverðra viðburða í boði
Tvö undanfarin ár hefur ein vika á ári verið helguð nýsköpunarfyrirtækjum og frumkvöðlum í Evrópu undir yfirskriftinni SME Week eða evrópska fyrirtækjavikan. Í ár er vikan tileinkuð frumkvöðlum sem eru að takast á við það ferli sem fylgir frumkvöðlastarfi öðru sinni og nú með nýja eða breytta hugmynd í farteskinu.
Meniga hlýtur verðlaun fyrir bestu bankalausnina
Meniga hlaut verðlaun fyrir bestu bankalausn ársins þegar „Banking IT-Innovation 2011“ verðlaunin voru afhent í fyrsta skipti á Business Engineering Forum í Austurríki sl. fimmtudag. Verðlaunin voru veitt fyrir þá tæknilausn sem þótti skara fram úr og skila viðskiptavinum banka- og fjármálafyrirtækja mestum ávinningi.